UM HAMMONDHÁTÍÐ DJÚPAVOGS
Hammondhátíð Djúpavogs hefur það að meginhlutverki að heiðra og kynna Hammondorgelið. Er það gert með því að fá tónlistarmenn, allt frá heimamönnum til landsþekktra, til að leika listir sínar og er Hammondorgelið rauði þráðurinn í gegnum alla dagskrána.
Hátíðin var fyrst haldin árið 2006 og hefur jafnt og þétt vaxið fiskur um hrygg síðan. Hún er nú orðin ein af elstu tónlistarhátíðum landsins.
Hammondhátíð er ávallt sett á sumardaginn fyrsta sem ber alltaf upp á fimmtudegi. Tónleikar eru svo á föstudags- og laugardagskvöldinu og hátíðinni er svo slitið með tónleikum í Djúpavogskirkju á sunnudeginum.
Í gegnum árin hafa í kringum Hammondhelgina sprottið upp fjölmargir aðrir viðburðir og eru utandagskrárviðburðir í gangi allan daginn frá miðvikudegi til sunnudags.
Listinn yfir þá tónlistarmenn og hljómsveitir sem komið hafa fram á hátíðinni í gegnum tíðina er orðinn langur og glæsilegur. Til að nefna nokkur nöfn hafa hljómsveitir og listamenn á borð við Hjálma, Sigríði Thorlacius, Baggalút, Dúndurfréttir, Jónas Sig, 200.000 naglbíta, HAM, Sölku Sól, Röggu Gísla, Emmsjé Gauta, Bríet, Todmobile, Stuðmenn, Magga Eiríks, Pálma Gunnars, Sólstafi, Mammút, SúEllen, FM Belfast, Moses Hightower, Bubba Morthens, Dimmu, Lay Low, Mugison, Nýdönsk og Pál Óskar heiðrað okkur með nærveru sinni. Allt í allt hafa rúmlega 300 tónlistarmenn og konur stigið á stokk á Hammondhátíð. Þá hafa ófáir austfirskir tónlistarmenn komið fram auk þess sem þáttur heimamanna hefur verið rómaður en um 60 tónlistarmenn og konur frá Djúpavogi hafa tekið þátt frá upphafi.
Hammondhátíð er orðinn langstærsti menningarviðburður Djúpavogs. Það þarf því ekki að hafa mörg orð um hve mikils virði þessi hátíð er t.a.m. fyrir ferðaþjónustuaðila, verslun, handverksfólk og alla þá sem bjóða einhverskonar þjónustu, enda fer viðburðum í tengslum við þessa hátíð fjölgandi ár frá ári. Ekki síst er hún mikilvæg fyrir okkur íbúana; í þessu samheldna samfélagi bjóðum við landsmönnum öllum upp á tónlistarhátíð á heimsmælikvarða, hátíð sem er sú eina sinnar tegundar í Evrópu.
Stjórn Hammondhátíðar skipa:
Ólafur Björnsson
Halldóra Dröfn Hafþórsdóttir
Kristján Ingimarsson
Guðjón Viðarsson
Þórir Stefánsson
Greta Mjöll Samúelsdóttir
William Óðinn Lefever

